Boston calling...
síminn er 857 928 2200
23.07.2006 04:33:36 / krut

Caaaalifoooooorniaaaa... bla bla bla

NAMMI NAMMI NAMM

HvAð ÞAÐ vaR GAMAN í CalifORNiuuuuuuuu


-ok.. ég veit að þið iðið í skinninu eftir ferðasögu.. en so sorry Bob, ég hef núll tíma til þess.. Þvííííí ég er að fara til Palm Beach í fyrramálið... úff pjúff klajæeincæídfnaæ, þetta er alltof erfitt líf!

Ég kasta inn nokkrum myndum í staðinn fyrir sögu.. restin af myndunum koma svo síðar.


Ég og Hollywood skiltið fræga.

Erla, ég og Los Angeles.

Við í Friends sófanum fræga;-)

Ég og gosbrunnur sem Erla segir að hafi verið í helling af myndum...

jebb



Hahahaha.. við í bílnum okkar sem við keyrðum um götur San Francisco í einn dag:)

Golden Gate og golden gimp.

Erla og San Francisco.

Ég og Jess með Alcatraz í baksýn.

Jess og Erla inní Alcatraz fangelsinu..

og svo við allar með fallegu, fallegu San Francisco í babsýn..


Farin að pakka...

..tjá beibís...



ó já.. svo megiði líka kommenta:)


» 17 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 15:35:19 / krut

Aha aha



Ég var að setja inn nýjar myndir. Þær eru þarna til hliðar undir ´myndirnar mínar´ og heita ´Júní.. Rhode Island og fleira´. Ég nenni ekki að setja link í færsluna þannig að þið verðið bara að kíkja þar.

Björg og Eggert eru búin að vera í Róm núna í næstum viku.. þau koma svo aftur ekki á morgun heldur hinn. Ég er semsagt búin að vera með krakkalingana ein núna og hef sýnt miklar listir í eldhúsinu.. matseðill vikunnar samanstendur af pantaðri pizzu, soðnum pulsum og upphituðum afgöngum úr frystinum. Ég er í einhverju ´ég nenni ekki neinu´-kasti þessa dagana. Eina sem ég nenni er að telja niður í skemmtilegri tíma..



Eftir 7 daga fer ég á Cape Cod til Erlu í 3 daga..

Eftir 11 daga fer ég TIL CALIFORNIU..

Eftir 18 daga fer ég til Palm Beach að flatmaga á ströndinni..

Eftir 20 daga á ég afmæli..

Eftir 29 daga koma mamma, pabbi og Árni Pétur í heimsókn...

Eftir 33 daga fer ég til New York með þeim..

...Ooooog eftir 36 daga fer ég heiiiiiiim...

Skemmtilegt.. ha!?! ..Já ég held það nú kallinn minn..

Hmmm.. merkilegt hvað ég hef ekkert að segja þótt það séu einvherjar 2 vikur síðan ég skrifaði síðast.. Það var 4. júlí í gær.. þjóðhátíðardagur samlanda minna. Ég ákvað að vera ekki minni maður en hin nokkur hundruð þúsundin og skellti mér og mínu gengi í lestina og niðrí Boston að horfa á flugeldasýningu. Eftir að hafa spreyjað hálfri dollu af moskító afhrindingar-spreyi á mig var ég ready í aksjónið. Orðið á götunni var að sýningin hérna í Boston væri sú stærsta í öllum Bandaríkjunum og fréttatíminn um kvöldið var eingöngu um þessa rosalegu flugeldasýningu. Bostonbúar voru orðnir rauðir í framan af spenningi. Sólheimaglottið var fast á andlitum manna. Þeir alla hörðustu voru mættir mörgum klukkutímum fyrir sýninguna með útilegustólana og heimskuna. Sýningin byrjaði svo klukkan 10.30 og crowdið hætti að blikka augunum til að missa pottþétt ekki af neinu. Í stuttu máli sökkaði sýningin. Ég gat ekki haldið aftur af föðurlandsástinni og sagði öllum sem ég gat ´This sucks.. you should go to Iceland over new year.. now that´s a real fire works show...Pfff´ Eftir miklar yfirlýsingar mínar um hversu mikið þeirra land sökkaði og hversu frábær mitt land væri var ég ekki mjög vinsæl þarna lengur og beðin vinsamlegast að yfirgefa svæðið.. bömmer. Nennti hvort eð er ekkert að vera þarna með vitlausa fólkinu, í lofti sem lyktaði af vonbrigðis-flugeldasýningunni. Þannig að ég fór til baka sömu leið og ég kom. Heim í fjörið.

Á síðustu 2 vikum er annars fátt búið að gerast. Sólaði mig einn daginn við sundlaugarbakkann uppá þaki á svona 20-30 hæða hóteli niðrí Boston. Það var svolítið mikið stuð. Svo fór ég í smá road-trip til Rhode Island.. það var líka góður dagur. Svo bara þetta venjulega.. bíó.. út að borða.. fór reyndar í leikhús líka, sá Rent. Það var líka ofsa gaman..

Jæja krakkar mínir...



MUNIÐI að GIRÐA ykkur VEL.


» 14 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 19:52:23 / krut

fínt að frétta bara..

Hvað er búið að gerast síðan ég skrifaði síðast.. hvað hvað hvað...

Það er búið að vera yndislega gott veður núna í einhverja viku... eitthvað rúmlega 30 gráður... Síðust 2-3 daga er búið að fara upp í næstum 40 gráður og það plús rakinn í loftinu hérna gerir bara hið besta gufubað. Verst hvað maður verður allur klístraður eitthvað í þessu veðri. Sveittur, dasaður og ógeðslegur.
Ég fór reyndar í sundlaugargarðinn okkar báða dagana um helgina. Það er hrikalega nice.. ég var náttúrulega með krakkana, en ég sulla bara smá sólarvörn að þau og sendi þau svo að leika sér.. finn til iPodinn minn, slúðurblöðin og hlussa mér á bekk.. gerist ekki betra. Ég og Erla ætlum svo að vera obboðslega duglegar að skella okkur þangað á virkum dögum þegar kiddarnir eru í camp og skóla.. held að það sé ágætlega farið með frítímann bara..
Svo er ég líka meira að segja komin með smá lit, homeblest brúnkan komin og nú er bara að fórna smá andlitsbrúnku-tíma í að jafna hana út.. tími voða sjaldan að leggjast á magann, finnst það svo mikil synd.. en er að taka mig á..


White boobies..


Vil taka það fram að þessi mynd er sviðsett. Ég á ekkert í þessum brjóstum.


(Módelið heitir E**a og vildi ekki láta nafn síns getið til fulls.. ef ykkur líst vel á þessi brjóst getiði fundið módelið í Winchester á 10 Pine Street... spurning hvort þau virki líka sem svona glow in the dark.. )



Hmmm...
Á 17. júní kíktum við á djammið. Ég, Erla og Jess ákváðum að kominn væri tími til.. eftir mikið og langt þurrkutímabil. Við komum saman í aðalpartípleisinu í bænum.. heima hjá mér.. og skelltum í okkur nokkrum bjórum og hvítvíni. Þar sem við höfum ekkert verið alltof virkar í tjúttinu hérna úti vorum við ekki alveg vissar hvert við ættum nú að fara.. Erla var þó úrráðagóð og fann á netinu einhvern karaoke stað sem við ákváðum að kíkja á. Í stuttu máli var mjög gaman hjá okkur þótt að staðurinn hafi lokað akkúrat þegar Erla var næst uppá sviðið. Við ætlum bara að fara aftur örugglega næstu helgi og mun Erla þá gera allt brjálað með slögurum eins og ´Final countdown´ og ´I will Survive´ Jess ætlar svo að taka eitthvað lag um Ástralíu, ´I come from the land down under´ eða eitthvað svoleiðis... ég hugsa að ég láti vera að syngja. Þeirri hugmynd var þó kastað fram á laugardaginn að ég myndi taka ´smellycat´..var kvefuð þannig að ég hefði tekið sexy söngröddina hennar Pheobe á þetta, en ákvað svo að láta það bara eiga sig..


Ég og Erla létum mála allt andlitið á okkur með íslenska fánanum áður en við fórum út á 17.júní.. þarna er verið að mála stelpurnar sem voru á undan okkur í röðinni.. spenningurinn hjá okkur því alveg að ná hámarki.



Ég er í svolítið miklu veseni með sjálfa mig.. sko þannig er að suma daga finnst mér svo hrikalega stutt eftir af dvölinni minni hérna, ég á eftir að gera eitthvað svo mikið og eitthvað. Hugsa að það sé svo lítið eftir af sumrinu mínu hérna í Boston, og hvað það er æðislegt að vera hérna yfir sumartímann. En aðra daga hugsa ég að ég væri nú alveg til í að fara bara heim á morgun.. þetta er bara komið gott, ég sakna margra heima og langar að eyða sumrinu á Íslandi...

Það er samt svo mikið að gerast hérna hjá mér þangað til að ég fer heim.. eftir 3 vikur fer ég væntanlega á Cape Cod í tæpa viku. Svo eftir það fer ég beint til Californiu í viku.. beint eftir það til Palm Beach í viku. Svo þegar ég kem þaðan er ég bara heima í einvherja 10 daga, og af þeim eru mamma, pabbi og Árni Pétur í heimsókn. Þannig að ef maður pælir í því er ég eiginlega bara alveg að koma heim.. en samt ekki..
ok.. ég er komin í bull


Þetta er nýji kærastinn minn. Við kynntumst í sundlaugargarðinum.. hann er algjört æði.



» 6 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 17:35:08 / krut

Vííííhúúúúúúú



Í dag... er ég.. búin að vera í Feitubollulandinu í.. tatararammmm.. 300 DAGA !!!

veiiii



Til hamingju ég!



-Annars er barasta allt fínasta að frétta héðan.. það er búið að rigna núna stanslaust í svona 100 ár, einstaklega hressandi. Það er búin að vera önnur mesta rigningin í maí síðan mælingar hófust um svona 1800.. án gríns.. þetta er eiginlega ekki eðlilegt. Núna er þetta held ég samt allt að koma til og í dag er meira að segja smá sól og allt. Ég ætla að nýta mér það og skella mér út á nýju línuskautana mína:)



Verð að fara.. krakarnir eru farnir að bíða....ble baby

Kristín Rut

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 06:19:00 / krut

greyið ég.. er með sár:(

BAHAMAS...

..VAR..

ÆÐI

Ohhh.. það var svo gaman.. og nice.. og frábært.. og yyyndischlegt...

Ingó kom til mín til Boston á þriðjudagskvöldi og svo fórum við á miðvikudegi til Bahamas. Svona klukkutíma eftir að við lentum vorum við komin útá sjó á jetski þar sem ég sýndi vægast sagt ofsalega takta bak við stýrið.. Brúnkan sat reyndar svolítið á sér því við vorum alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, voða lítill tími til að liggja í sólbaði.. Við leigðum okkur líka vespu, þar sýndi ég ekki mikla takta bak við stýrið og gat bara með engu móti stýrt þessu tryllitæki.. þannig að ég lét það bara alveg vera. Það er bara alveg fáránlega erfitt að keyra þetta dótarí. Það var æði að keyra í kringum alla eyjuna, og um hana og sjá húsin sem innfæddir búa í og svo allar villurnar sem ríka fólkið á.. fáránlega flott. Við reyndar lentum í smá ''slysi''. Við klesstum á einhvern vegakannt og skutumst af hjólinu.. Ég fékk svolítið ljótt sár á sköflunginn og gat þess vegna ekkert farið í sjóinn það sem eftir var.. eiginlega.

Svo fórum við líka í Booze Cruize sem var obboðslega gaman.. þetta hét reyndar Sunset cruize/booze cruize, fyrst voru bara ástarlög og það var horft á sólarlagið.. svolítið cheesy eitthvað svo um leið og sólin hvarf byrjuðu partylögin á fullu og fríu coctailarnir flutu um allt. Þá dönsuðu sumir kúbverska dansa og aðrir rassadansa.. mjög skrautlegt og skemmtilegt kvöld;-) Við fórum líka í aðra siglingu þar sem maður lá á einhverju neta-þilfari og hafði það þæginlegt og svo var stoppað og snorklað... ohhh þetta var æði:)

Það var ótrúlega fyndið.. á sunnudaginn vorum við bara eitthvað á ströndinni á leiðinni í strandatennisinn frábæra þegar það var kallað á íslensku. Þá var bara mættur Jón Víðir vinur Ingó á ströndina hjá okkur og Brynja systir hans. Þá höfðu þau bara ákveðið að skella sér til Bahamas daginn áður og voru á sama hóteli og við og allt.. einstaklega skemmtileg tilviljun.. Með þeim fórum við aftur í casino sem við höfðum farið í áður, og tapað pening.. en í þetta skiptið var vinningur og fagnaðarlætin í stíl við það.. djöfull var það fyndið.. hahaha

Þegar ég fór og snorklaði þá var ég að fara í fyrsta skipti með sárið mitt í sjóinn. Mamma var reyndar búin að segja að ég mætti það eiginlega ekki því það væru svo miklir sýklar og ógeð í sjónum.. en mig langaði bara svo mikið að snorkla. Ég var með umbúðir um það eins og ég væri þrífótbrotin eða eitthvað og hélt að það myndi halda geggjað vel í sjónum.. en eftir sirka 1 mínútu voru umbúðirnar dottnar af..

Núna er sárið viðbjóður og ég fór þess vegna til læknis í dag.. það tók heimsku amerísku læknana 3 klukkutíma að kíkja á sárið og skrifa uppá lyfseðil fyrir sýklalyf fyrir mig.. Ég er semsagt komin veð vibba sýkingu í helvítis sárið og er að deyja.

Ó.. svo er líka búið að ákveða dagsetningu hvenær ég fer heim. Ég mæti til Íslands á föstudaginn 11.ágúst klukkan ca 6.45 að morgni.. veiiii

Farin að sofa í hausinn á mér... kommentiði.

ble


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 01:46:24 / krut

Beach Boys - Kokomo

hmmm... hvað er þetta??

..Þetta er BAHAMAS baby..

je je je je

..og hver er að fara þangað??

ÉG, MOI, JEG.. si senjor..mi amigo

ííííhhhhhaaaaaaaaaa

Núna haldið þið örugglega að ég sé búin að búa til svona niðurtalningarmiða ala Kristín Rut og það séu einhverjir 137 dagar í þetta eða eitthvað... en neibb.. það eru 2 dagar þangað til.. eiginlega bara 1,5 dagur því núna er mánudagskvöld og ég fer á miðvikudagsmorgun... Ég ætla að... snorkla, synda, liggja í sólbaði, borða gúddí mat, skemmta mér.. ohhh ætla að gera svo mikið skemmtilegt8) 

Síðustu viku er ég bara búin að vera að flytja. Úff maður.. pökkuðum þrjár píur öllu fjögurra hæða húsinu á einum og hálfum degi.. nokkuð gott myndi ég segja. Fluttum svo einhverjum fjórum dögum seinna. Þá fagnaði ég ógurlega því við vorum loksins flutt og allt þetta stress og vesen búið... fattaði þá að maður þurfti því víst líka að taka uppúr kassadruslunum. Er samt búin að því núna og hef þess vegna ótrúlega mikinn tíma að hugsa um Bahamas baby... Eníveis.. húsið er hriiiikalega flott, hef aldrei, aldrei, aldrei séð neitt þessu líkt.. finnst stundum að ég búi í höll eða eitthvað, ýti svo á takkan á veggnum.. gardínurnar rúllast upp, og úti blasir við mér sama ljóta ameríska umhverfið.. ekkert voðalega hallarlegt, vantar alveg risa engi og síki og svona.. en þetta verður að duga....

Inga er flutt heim fyrir sumarið.. mér til mikillar óánægju.. kúkalabbinn. Við sem ætluðum að skoppa um Boston í pilsum, sveiflandi hárinu, að sjálfsögðu hlægjandi af því að maður er svo happy í góða veðrinu í allt sumar.. Hef samt mikla trú á Erlu í skoppinu, og býst fastlega við því að lunchar á Newbury verði margir á næstu mánuðum..vei vei vei

úúúú I wanna take you to Bermuda, Bahama.. come on pretty mama...


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 14:49:46 / krut

hmmmm...

Jæææææja...

Hmmm.. ég er nú eiginlega bara að skrifa til að skrifa.. það gengur bara allt sinn vanagang hérna megin.. Það snýst reyndar allt þessa dagana um flutningar hjá mér. Við flytjum til baka í húsið okkar eftir eina og hálfa viku. Núna erum við búin að vera í þessu húsi í 9 mánuði og allt að verða tilbúið að innan í húsinu okkar. Hlakka hrikalega til að flytja.. eða vera flutt. Það að pakka niður fjagra hæða húsi er ekkert alltof spennandi.. en það verður gott eftirá:)

óóóóó... ég er svoooo spennt!! Af því að... I'm going to San Francisco... lagið þú veist, er alveg með þetta á heilanum:) ég er nefninlega að fara þangað.. San Francisco.. og Los Angeles.. Ætla að taka mynd af mér með Hollywood skiltið fyrir aftan mig, láta hendurnar mínar ofaní hendurnar á öllu fræga fólkinu.. þið vitið á stjörnunum þeirra á götunni.. og margt fleira.. veit ekki alveg hvað en allavega margt fleira hrikalega skemmtilegt. Hugsa nú að ég kíkji líka eitthvað útá lífið þarna á Vesturströndinni.. bara í bikinítopp og mínípilsi svo að ég fitti vel inn. Erla er nú þegar búin að kaupa sér þrjú mismunandi bikiní fyrir djammið þar.. hún hlakkar svo fáránlega til að klæðast þessu að hún er alveg að farast.. Við, ég og Erla, förum þann 16.júlí til L.A.. Verðum þar í 2 nætur og skellum okkur svo yfir til San Francisco.. þá kemur Jess og hittir okkur þar og við gerum allt vitlaust... ohhhh ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til.. lagið þú veist..
Daginn eftir að ég kem heim úr þessarri ferð.. þann 23.júlí fer ég svo til Palm Beach með familíunni hérna.. verð þar í viku, semsagt yfir 21 árs afmælið mitt.. annaðhvort verð ég semsagt að horfa á sjónvarpið inní hótelherbergi ein á 21 árs afmælinu mínu.. eða að ég skelli mér ein út á tjúttið, sem ég myndi segja að sé mjög ólíklegt..
Svooo þegar ég kem heim frá Palm Beach eru bara einhverjar 2 vikur í að ég komi heim.. til fallega Íslands! Vei Vei Vei.. hlakka líka til þess.. ég er búin að finna út að þegar maður er svona langt frá öllum er obboðslega gott að hafa eitthvað til að hlakka til í hverjum mánuði.. í þessum mánuði hélt ég að ég myndi ekki hafa neitt til að hlakka til, er bara að flytja og eitthvað.. en það hefur birt yfir Maí og ég er væntanelga að fara í lok maí til Montreal eða eitthvað, ekki alveg ákveðið held ég.. en lítur allt út fyrir það.. ohh hlakka obboðslega til;)
Í júní hef ég líka örugglega tilhlökkunarefni.. samt ekki staðfest.. Mútta, Pabbi og lilli brósi eru að spá í að koma í heimsókn.. það verður fáránlega gaman líka.. krossafingur:)

Váá það er svo skemmtilegur tími framundan.. mig langar samt líka obboðslega að vera á Íslandi í sumar, fara með teppi niðrá þarna grasið hjá Kaffibrennslunnni.. man aldrei hvað það heitir og hafa það kósí.. skella mér svo í helgarferð til Köben og hafa það ennþá meira kósí.. þetta er samt allt í lagi, það kemur sumar á eftir þessu sumri og þá geri ég bara þessa hluti. Ætla að einbeita mér núna að því að njóta þess að vera hérna og hafa það gott... og kósí..

Ég tel þetta nú bara nokkuð gott hjá mér, þar sem að ég settist niður og vissi ekkert hvað ég ætlaði að skrifa um.. ó, svo er von á æsispennandi pistli hjá Erlu um hjólreiðakappa og bílstjóra og fleira... mér var bannað að skrifa um það (það er samt ekkert fáránlega spennandi.. en svona ágætis saga)

Ó.. góðvinkona mín hún Sandra Tiger átti afmæli um daginn.. innilega til hamingju beibí;)

kossar og knús


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 20:55:44 / krut

...er á lífi:)


Já hérna megin er stuðið eins og sést bersýnilega á þessarri mynd...



Ég er semsagt komin aftur "heim" eftir yyyyyndislega ferð til míns heittelskaða.. Íslands:) Ferðin var frábær, geggjuð, yndisfríð, yndisleg, yndæl, ohhh, æði... ég hitti flesta sem mér þykir vænt um, fór á kaffihús, í afmæli, í saumó, út að borða, í göngutúr, í sund, fór í bláa lónið, fékk mér pulsu (algjört must þegar maður kemur til íslands;)), borðaði yfir mig af hrauni nokkrum sinnum... oooooooog kíkti á djammið... vei vei vei hvað það var gaaaaaaman:):)



Ég var reyndar alltof ódugleg á myndavélinni.. ég ætla alltaf að taka svo mikið af myndum þegar ég kem til Íslands, en einhvern vegin geri ég það aldrei:/ ég tók samt tvær myndir.. eftir að Harpa heimtaði það... Þetta er önnur þeirra, en hin er alveg eins nema þá er hún með gleraugun sem gæjinn með sólheimaglottið bakvið hana er með á sér... hún er merkileg þessi stelpa...





Annars er allt bara að ganga sinn vanagang hérna í feitabollulandi... ég kíkti aðeins út á fimmtudagskvöldið, Erla skvísa átti afmæli.. varð 21 árs, og var því lögleg til að drekka.. ég mætti að sjálfsögðu með mitt megaskilríki og skellti einum Corona niður, dugleg stelpa.. Föstudagurinn fór í langt lunch með Ingu Pingu minni og rólegheit um kvöldið.. var bara að passa, svo ákváðum við að hafa það kósí og horfa á nokkra Simpsons þætti, ég straujaði nokkrar flíkur á meðan og það kom mér skemmtilega á óvart að mér finnst bara svolítið gaman að strauja.. (vá var að lesa þetta yfir og ég held að þessi setning sé mjög ofarlega í leiðinlegustu bloggsetningar landsins...) Laugardags/gærkvöldið var mjög gott.. fór að borða á yndislega Border Café með Ingu og Mæju frænku hennar, og svo fórum við Inga og hittum Erlu og Jess á nýjum stað sem við vorum að uppgötva, með live tónlist og skemmtilegheitum:)



Hef voða lítið að segja eitthvað... Erla er að fara að koma til mín og við ætlum að taka gott deit-kvöld, kíkja út að borða og jafnvel í bíó.. segið svo að ég sé ekki rómantísk, ha...

Efst í huga mínum akkúrat þessa stundina er jaxlinn sem ég er að fá.. er svolítið að trufla mig... og líka það að ég brenndi mig á tungunni í morgun.. það er alltaf svolítið óþæginlegt. Er líka með ótrúlega ljótan marblett á hægri biseppnum.
Reyndar er kannski hvað ég ætla að fara að læra næsta haust aðeins ofar í huganum en jaxlinn.. ég var alveg búin að ákveða hvað ég ætlaði að gera.. svo fór mamma eitthvað að rugla í hausnum mér.. hugsa samt að ég haldi mig bara við Viðskiptafræðina eins og ég var búin að ákveða.



Ætla að fara að láta á mig maskara fyrir deitið mitt.. spurning um að ég láti Hrafnhildi mála mig, hún hefur augljóslega mikla hæfileika á því sviðinu.. eins og sést á efri myndinni... þetta er lúkkið fyrir sumarið stelpur, I´m telling you, var að selja þessa mynd í Vogue.. they loved it...



Kommentiði svo elsssschkurnar mínar.. mér finnst það svo gaman:)



Vernína;-)

» 8 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 18:25:25 / krut

Boobies.. júllur.. túttur.. Ert þú sérfræðingur??

...eins og ég virðist vera 8)

Var að nörrast á netinu og álpaðist inná þetta próf..


Ýttu og prófaðu.. ýttu ýttu ýttu


Brá þér?? Veit ekki hvort að þetta sé neitt voðalega töff.. en þetta er útkoman sem ég fékk:



You Scored 12 out of 12



Great job! You're definitely a breast man.



Jebb, jebb, jebb.. ég er algjör brjóstaKALL!! Ég var semsagt að taka brjóstapróf inná einhverri karlaklámsíðu... ekki alveg saga til að segja barnabörnunum kannski.. Æji mér finnst svona svo ógeðslegt eitthvað, sé alveg fyrir mér sveitta, feita, illa lyktandi truck drivera vera að taka þetta próf og kippa í litla kallinn, sem þeir hafa að sjálfsögðu gefið nafn eins og alvöru viðbjóði sæmir...

Nenniði að kalla mig þetta héðan frá?






Your Porn Star Name Is...



Spanky Bottoms



..ok, nóg komið af klámi??


.. og hérna er heitasta slúðrið hérna megin hafsins í dag:

-Teri Hatcher og Ryan Seacrest eru saman... Jább, LITLI lúðalegi Idolkynnirinn.. og alltof mjóa (ég er ekki bitur) despó pían eru að stinga saman nefjum... það er meira að segja til mynd af þeim kyssast, ég sá hana í sjónvarpinu.. ég fann hana samt ekki á netinu, ég kann bara að leita af klámi...



-Matt LeBlanc og frú eru að skilja... hann sótti um skilnaðinn. Hérna eru þau þegar allt lék í lyndi, eða þegar þau voru að þykjast vera happy fyrir myndvélarnar.. veit ekki, veit ekki...



-fréttir af mér eru nú því miður ekki jafn krassandi og af fræga fólkinu.. það sem er efst í huga mínum er væntanleg Íslandsferð mín, sem ég legg einmitt í eftir viku í dag.. ofsalega skemmtilegt allt saman... annars er bara allt venjulegt hérna, var að reyna að vaxa á mér fótleggina rétt í þessu.. það gekk svona ágætlega, get ekki sagt illa, né vel... veit það ekki alveg... ég gerði bara annan, gafst upp þegar ég var semsagt næstum því hálfnuð. Næstum því já, því ég kláraði ekki alveg einu sinni annan fótinn... æji en þetta er allt í lagi, ég held bara áfram á morgun með þetta..;

Jæja, kveð að sinni.. Kristín Rut Jónsdóttir


p.s. vissuði að að meðatali finna öryggisverðir á flugvelli 6 vopn í gegnumlýsingartækinu á dag?!? Sláandi alveg hreint...

» 14 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 20:14:38 / krut

Picture crazy

Ég er latasta manneskjan á þessari jörðu, get svo svarið það.. í dag er ég búin að tala á msn, tala á skype, tala á msn og tala aðeins meira á skype.. í dag var ég valdur af því að ein manneskja lærði lítið sem ekkert, en sú manneskja var í tölvunni til að læra.. en endaði á að tala við mig.. lengi... önnur manneskja ætlaði að vera voðalega dugleg í þvottinum í dag, en ekki ein vél hefur verið sett í gang. Sú manneskja er ég... ohhhhh

Allaveganna.. núna er ég að reyna að vera dugleg og blogga.. aðallega því þótt ég sé löt þá er ég ennþá besta dóttir í heiminum, ég og mamma vorum að tala um það í gær.. manstu mamma? Þetta er ekki í fyrsta og ekki í annað skiptið sem ég blogga bara af því að hún var að tuða yfir því, þessi elska..

Ég kom heim af skíðum á laugardaginn. Það var hrikalega nice ferðalag... afslappandi og gott. Við vorum voða róleg á skíðunum, ekkert stress og leiðindi. Ég fékk skíðakennslu fyrstu tvo dagana.. ég og nína ruth vorum saman með kennara.. hann Dick Allen. hahaha ég átti hriiiikalega erfitt með mig.. ´hey DICK , it´s ok, go faster, faster´ ´DICK DICK, where are you?´ hahahaha endalaust fyndið nafn, eða þá ég endalaust óþroskuð... veit það ekki.. hahahahahaha
í ferðinni kom ég sjálfri mér þó soldið á óvart. Ég var orðin soldið stressuð fyirr að fara að skíða eitthvað, en viti menn, ég var bara allt í lagi sko.. datt nokkrum sinnum í byrjun, ekkert alvarlega.. einu sinni var ég að fara allt of hratt miðað við getu mína og vissi ekkert hvað ég átti að gera.. var ekki lengi að koma mér útúr vandræðunum.. ákvað bara að sniðugasta væri að henda mér í jörðina.. ég rúllaði, skoppaði og fyllti fötin mín af snjó.. þegar ég loksins stoppaði var kjafturinn á mér líka troðfullur af snjó.. þetta var alls ekki töff...
Shit ég get ekki hætt að hugsa um hvað nafnið hans er fyndið... hahahaa
Erla var að skíða með familíunni sinni korteri frá mér.. hún kíkti á okkur í einn dag og skíðaði með okkur og fór út að borða og svona.. allt hrikalega gaman alveg hreint..

Ætla bara að hafa mig hæga.. er alls ekki í blogggírnum.. þetta er nákvæmlega, mamma, það sem þú færð útúr tuði.. lélegan pistil.. bla bla bla

Ég lét inn myndir frá ferðinni... ýttu HÉR.

Kristín Rut Jónsdóttir


Elsku vinkona, ég samhryggist þér innilega:(


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 05:44:52 / krut

Colarado..skíði..heitapottur...


Þarna er ég að fara á skíði á morgun:) Ég veit ekki alveg hvernig það er að fara að ganga þar sem að ég hef sjaldan verið orðuð við skíðaíþróttina.. ég hef nú alveg farið á skíði.. tvisvar.. með skólanum. Ég skíðaði þó allan daginn í þeim ferðum, var reyndar alltaf bara í barnabrekkunni en fannst ég vera tilbúin í erfiðari brekku.. en þá var alltaf kominn tími til að fara heim. Ég fæ samt sem betur fer skíðakennara fyrstu tvo dagana, þannig að þetta verður allt í lagi. Vona ég. Shit.



Annars fórum ég og Erla í bíó í gær. Við fórum á nýju Bruce Willis myndina, hún var bara góð. Meira að segja Erlu fannst það líka, var búin að fussa smá yfir að þetta væri svolítil strákamynd og að mig langaði alltaf á strákamyndir...en ég fékk hana til að viðurkenna að henni fannst hún góð. Já.. svosum ekkert frásögufærandi að við fórum í bíó nema vegna þess að fólkið sem var með okkur í bíó var hvert öðru skrítnara... Þarna var par með svona 3ja og 6 ára gamlar dætur sínar, klukkan hálftíu á mynd bannaðri innan 16. Greyið litlu stelpurnar voru ekki alveg að fíla Bruce og félaga og maður heyrði þvílíkan angistargrát fyrir ofan sig. Þá sussuðu foreldrarnir hástöfum á litlu stelpurnar og sendu þær síðan í stigana að leika sér...úfff... síðan var krípí kallinn í síða frakkanum sem var alltaf að skipta um sæti, fyrst sat hann skáhægri fyrir neðan okkur.. svo ská vinstri fyrir neðan og loks sætti hann sig við skávinstri fyrir ofan okkur.. þar sem þessi líka rosalegi líkamsfnykur átti greiða leið til okkar.. hann var svo illilegur eitthvað, við Erla ýminduðum okkar báðar að hann myndi taka upp byssu og tryllast og skjóta okkur öll... rúsínan í pylsuendanum er svo held ég-heimilislausi maðurinn, hann var í hjólastól, með 5 troðfulla poka hangandi utan á honum, væntanlega aleigan... nema hvað hann valdi sér sæti mjög ofarlega.. skutlaði sér úr hjólastólnum og rölti upp. Hann var líka alltaf eitthvað að færa sig, ná sér í eitthvað drasl í pokunum sínum og eitthvað.. sem jú, við ýminduðum okkur að væri byssa...



Haldiði nokkuð að ég endi svona?:






» 7 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 18:08:53 / krut

New York... myndir og svona...


Jæja.. er komin aftur heim til Boston.. NEW YORK VAR GEGGJUÐ!! ohhhh það var svo gaman gaman gaman gaman;)


hey, ætla að prófa svona punktafærsludót.. hef reyndar ótrúlega litla trú á mér í svoleiðis, en so be it..


-fórum í CHINAbus kukkan 7 á föstudagskvöldi
-komum í geggjaða hótelið okkar um miðnætti
-43.hæð vóóó
-útsýni yfir Times Squere vóóó
-vorum allar very excited (orð ferðarinnar)
-I´m so excited, i just can´t hide it... jú jú lag ferðarinnar
-kíktum á bar, sungum lagið og dönsuðum við litlu kallana
-It´s from him.. bent á bjórinn minn og svo krípí gæjann sem var einn þarna.. töff
-Skoskir dansar
-vibba pulsur, ojjjj
-vaknað...kaffi...
-labbað 5th ave, central park (Jess fann Emmett, NY kærasta sinn þar), times squere...
-eftirmiðdagslúr
-fórum út að borða á æði ítalskan stað, Erla fann NY kærasta sinn, Jonathan þar...;))
-ég átti á þessum tímapunkti ekki NY kærasta... valdi mér einn á barnum sem við fórum á.. sagði brandara sem Erla mætti helst gleyma bara...
-sofi sofi sofi
-Soho og búðir.. keypti mér sunglasses og bol.. Didda mín elsku systir keypti líka úr handa þér:)
-kíktum á vaxmyndasafn.. fann mér annan NY kærasta þar, hann er á síðustu myndinni minni.. algjör biggí hottí
-dóum úr kulda
-fórum í CHINAbus og komum heim....

vá hvað ég er léleg í punktafærslum, lofa að gera þetta aldrei aftur... jiii óska þess ekki á minn versta óvin að lesa yfir þetta..sorry..


Shit var að lesa þetta yfir.. úff... ok...



Er farin út að eyða peningum.. hef ekki farið í mollið í rúmar tvær vikur, úfff


kíkiði á myndirnar á linknum hérna við hliðina, eða hérna


og Erlu perlu myndir ef þú ýtir á þetta..



Segjum það..heyrumst, sjáumst..
Kristín:)

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 20:45:36 / krut

NEW YORK..BABY



...þarna verð ég á eftir, að drekka kaffi... að sjálfsögðu með þeim...





(þessi mynd minnir skuggalega á þarna gömlu frægu myndina síðan 1937 eða eitthvað svoleiðis... eins og Didda syss á... kannski hafa þau bara verið að flippa og þykjast vera sú mynd.. veitiggi.. ég skal spurja þau á eftir..)



SVOOOO er að sjálfsögðu planið að kíkja á partýin, djamma, djúsa, drekka, dansa, mála bæinn rauðann, kveikja í þakinu, öskra, ískra, syngja, binda..bara svona skemmta sér skiljiði..



..allavega, stelpurnar hringdu í mig áðan á skype og við ákváðum hitting... þær sendu líka mynd af sér:




..minnir Samatha ykkur á einhvern??



Semsagt.. ER AÐ FARA TIL NEW YORK, fyrir ykkur sem fattið ekki...



Stay coll,


kv.Kristín Rut


p.s. ef þið eruð eitthvað þurr í hausnum... nokkur dæmi um komment: váááá, hvernig fórstu að því að láta fyrirsöginina hreyfast??! þú ert svo klár Kristín... eða: ohhh vildi að þú hefðir skellt þér til Íslands, ekki NY.. elska þig mest!! ...skiljiði hvað ég er að fara... comments baby...thanks...



» 10 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 19:46:26 / krut

Ísland var...


........ÆÐI!!!

Ohhhhhh hvað það var ótrúlega, yndislega, frábærslega gaman að koma í heimsókn til ykkar elsku dúllurnar mínar:)

Hmmm hvað gerði.. ég kom á laugardagsmorgni og héldum við svo hátíðlegan afmælisdag besta bróðurs í heimi, þar stóð uppúr einstakur hæfileiki minnar ástkæru móður í bakstrinum. Namminamminamm.. Þar sem var jú laugardagur og laugardagskvöld stuttu eftir það lét ég mig að sjálfsögðu ekki vanta í bænum. Setti mig í partýgírinn, sem var ekki beint erfitt.. og skellti mér í heimboð til Eydísar (takk kærlega fyrir það Eydís mín, bjargaðir algjörlega kvöldinu fyrir mig) og hélt svo í 101... einn af mínum bestu vinum í ferðinni.. endaði kvöldið á væmnu nótunum, notebook er sko ekkert við hliðina á skötuhjúunum litlu mús og stóru mús...úffff.. æi það er nú samt gaman af þeim dúllunum;)
Svo var ég náttúrulega bara með krakkalingana mína á daginn í vikunni... við fórum tvisvar í keilu, á skauta og í sund... ahh nice. Svo máttu þau ráða hvað þau gerðu á föstudeginum, efst á óskalistanum var að fara í barnaland í smáralind eða kringlunni, og eins góð pössunarpía og ég er nú veitti ég þeim þá ósk og ég og Harpa kíktum í smá verslunarleiðangur... erfitt líf...
...Ég fór í bíó með Diddu systur, og missti af aðalatriðinu því ég þurfti endilega að asnast á klóstið akkúrat þá... fór á kaffihús með litlu og stóru (ekki músum)... kaffihús með Ásu, Guðrúnu og Elísu, bíddu var Kristín Gei líka þarna, æ nei...alveg rétt!... kíkti í bjór á Hressó á fimmtudeginum, og smá stemmningu eftir það (leynikveðja)...
..á föstudaginn nýtti ég mér að vera alein heima, en það gerist víst ekki oft á mínum bæ... fjöskyldumeðlimir ákváðu allir að sofa einhvers staðar annars staðar, svona er maður vinsæll þegar maður kemur að heimsækja þau... ég snéri þó vörn í sókn og bauð stelpunum í kotið... það var blaðrað, dansað og teknar myndir af bossum.. svo skutlaði hann Raggi leigubílastjóri okkur í bæinn, og var held ég orðinn hálf-heyrnarskertur greyið eftir bílferðina..hihi:) fórum á Vegó, svo á Oliver, þar sem ég endaði í rosalegri stemmningu ásamt Pétri og Ingólfi... Pétur ég fíla þig...djók;)
..Laugardagurinn sjálfur var góður.. ég var mjög nálægt beili á bænum um kvöldið en eftir tiltal og skipun frá Hörpu kíkti ég í eurovision partý... og jú svo í bæinn... var dauðþreytt og fór snemma að sofa:)

Ég ætla reyna að stoppa þessa munnræpu sem ég er komin með hérna, í veikri von um að hún Eydís nenni kannski að lesa þetta...

TAKK ÆÐISLEGA allir sem gerðu þessa heimsókn frábæra, þið vitið hverjir þið eruð;)

knús og kossar

Kristín Rut Jónsdóttir


p.s. nenniði að vera dugleg að kommenta, ég eeeelska komment...takk;-)

p.s.2 fjúff hvað ég er orðin sjóuð í bloggtækninni...myndir síðast og rautt núna...usss..

» 11 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 20:32:35 / krut

VÍÍÍÍÍÍÍ.... ég kann að setja inn myndir;-)

(ég lét þessa færslu inn fyrr í dag, en var að laga smá staðreindarvillur og skellti inn myndum... því núna kann ég það!! TAKK KÆÆÆÆRLEGA ÁSDÍS!!)

í dag er merkilegur dagur... ofsalega merkilegur dagur reyndar:) Ekki bara af því að í dag er jú þjóðhátíðardagur Grenada, sem er að sjálfsögðu afskaplega merkilegt... eeen líka af því að í dag á mjög svo merkileg manneskja afmæli! Afmælisbarnið er fallegasti, yndislegasti og frábærasti drengur á þessari jörð... minn yndisfríði litli bróðir, Árni Pétur Jónsson;-) Hann á reyndar ekki afmæli fyrr en klukkan 23.59 í kvöld.. hann fæddist nefninlega klukkan 0.00 og samkvæmt hjúkkunum er það víst ekki neinn dagur eða eitthvað, þannig að einhver hjúkkan þarna ákvað bara að hann skildi eiga afmæli 23.59 þann 7.febrúar...persónulega skil ég ekki alveg hjúkkuna að velja 23.59 en ekki 0.01... en ég var víst ekki spurð...Svo finnst mér líka svolítið merkilegt að kl. 0.00 sé bara ekki löggildur tími til að fæðast á, síðast þegar ég vissi æpa allir af gleði þegar klukkuna slær 12 á gamlárs... er þá ekki komið nýtt ár?? eða er verið að fagna að þetta sé síðasta mínútan á gamla árinu?? eeeeða er fólk bara eitthvað að misskilja lífið og það er bara ein mínúta á hverjum sólahring sem er bara eitthvað ein á báti og tilheyrir engum degi...æi skil þetta ekki alveg...En semsagt.. hann er 11 ÁRA drengurinn í dag...;) fáránlegt að pæla í því að litli bróðir minn sé orðinn svona stór, bráðum get ég ekki sagt litli bróðir minn lengur heldur verð ég að segja stóri bróðir minn, hann nær núna held ég uuppað brjóstum á mér eða eitthvað, og hef ég sjaldan verið kölluð nein smásmíði.. jii minn... rúsínubollurassgatið mitt er 5.bekk, ég man sko eftir 5.bekk eins og hann hafi verið í gær... ég var í 5.ES, sem mér fannst töffaðasta nafnið á bekk fyrr og síðar, Didda var ekki með jafn flott nafn á bekk man ég... svo þegar maður fór í 5.bekk þá fór maður að ganga inn um innganginn lengst til hægri á Engidalsskóla með krökkunum í 2.bekk, þannig að þá var maður rosa fullorðinn... miklu meira heldur en í 4.bekk, en þá deildi maður inngangi með 7.bekkingunum og var því krakkinn í þeim inngangi... já margt breyttist þegar 5.bekkur byrjaði, góðir tímar, góðir tímar...
Einhvern vegin tekst mér alltaf að snúa umræðum um aðra í umræður um mig... þetta átti víst að vera um bróður minn, en tatararamm fór ég ekki bara að tala um mig og inngangana í skólann minn, ég er ekki frá því að þetta sé einhver skemmtilegasta færsla sem ég hef skrifað..haha djók... ekki alveg...

semsagt:

TIL HAMINGJU RÚSÍNUENGILLINN MINN;-) kiss kiss knús knús...




þetta er sæta afmælisbarnið... mjög mikill FH-ingur og fagnaði ákaft þegar þeir urðu Íslandsmeistarar:)

Ég hringi í þig á eftir lilli minn og syng fyrir þig... hlakkar þú ekki til?? ég myndi gera það... ég er þótt ég segi sjálf frá frábær söngkona og lagviss með meiru... Ég kvíði reyndar smávegis fyrir, er soldið hrædd um að hann skelli á mig eða eitthvað, ég var að tala við gæjann um daginn og var bara eitthvað að spjalla um tölvuleiki og skólann og eitthvað, svo eftir í mesta lagi 1 mínútu sagði drengurinn: ´æi ég nenni ekki að tala við þig lengur, bæ!´ og rétti mömmu símann!! ég hef sjaldan verið jafn fúl, jós yfir hana mömmu mína að hún ætti sko að kenna barninu sínu að þetta væri nú ekki kurteist og ég veit ekki hvað og hvað...

Ég ætla semsagt að halda uppá afmæli rúsínunnar í kvöld með því að skella mér á tónleika hérna í Boston... ég var að ákveða að fara að nýta mér betur að vera hérna úti og fara á fleiri tónleika og svona, Rolling Stones var hérna um daginn og ég hefði átt að fara á þá, gerði það ekki.. en ég er að fara á Sigurrós í kvöld.. veit að það er kannski enginn rosaleg nýting á því að vera útí útlöndum, geri mér grein fyrir því að þeir eru íslenskir og ég gæti nú alveg farið á þá heima, en hey, tónleikar eru tónleikar...


sjáumst á eftir beibís!!

Ég ligg hérna uppí rúmi og er að horfa á fréttir.. helst í fréttum hérna í landi tækifæranna er hann Mr.Robita klikkhaus... þessi 18 ára gæi fór inná hommabar á fimmtudaginn, settist niður og spurði barþjóninn hvort þetta væri hommabar, barþjónninn játti því og stóð þá Robita upp með byssu í annarri og einhvers konar exi í hinni og tjúllaðist bara... hann meiddi 3 alvarlega... svo hoppar hann uppí bíl og keyrir eitthvað í buskann.. í gær fannst hann af því að hann ákvað að skjóta 63 ára gamlan dúllu-löggukarl... þá er svona löggu-eltingarleikur í smá stund, svo þegar hann stoppar, snýr hann sér að Ms.Baily, 33ja ára fyrrverandi kærastu sem hann náði í einhvers staðar á leiðinni, faðmar hana og skýtur hana svo í hausinn... stekkur svo útúr bílnum og skýtur á löggurnar, sem skjóta hann svo og hann deyr... Þessi gæi var með heimasíðu þar sem hann talar um hvað hann sé mikill nasisti og eitthvað og er með vægast sagt skrítnar myndir og eitthvað inná henni... var bara eitthvað að pæla í því...hvað gerist eiginlega í hausnum á svona fólki?? skil þetta ekki alveg.. hvernig verður maður svona kolgeggjaður?? það er endalaust af einhverjum svona fréttum hérna... svo fer maður inná mbl.is og þá er aðalfréttin að einhver velti bíl á reykjarvíkurveginum, eða að kringlan verði opin í auka-klukkutíma í dag... yndislega saklaust og fallegt land.. annað en klikkos-bandaríkin...

sjáumst eftir nokkra daga á þessu landi:


(varð bara að setja inn þessa mynd...AF ÞVÍ AÐ ÉG KANN ÞAÐ!!:))

kv. Stíns

p.s. TIL HAMINGJU RÚSÍNUBOLLU-DÚLLU-SNÚLLU-SÆÆÆÆÆTI BRÓÐIR MINN ..mwwwaaaa... kissíkissí, mússímússí

p.s.2 hvað langar þig í í afmælisgjöf??? ekki segja tölvuleik því þú átt alla tölvuleiki sem eru til... í alvörunni!!

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3